Hummus

Þessi hummus er algjört æði:) Fljótlegt að útbúa og hollt og gott millimál. Mér finnst æðislegt að borða hummusinn með hrökkbrauði, poppkexi og fersku grænmeti.

1 krukka kjúklingabaunir (ég nota frá sollu, þær koma í glerkrukku og það er hægt að setja hummusinn ofan í krunnuna )
2 hvítlauksrif
2 msk olivuolia
salt
cayanne pipar að vild
2 msk kasjúhnetur (má sleppa)

Vatninu er hellt af baununum og þær skolaðar, síðan er öllu blandað saman í vatvinnsluvél eða góðum blandara.

Hummusinn geymist í ískáp í um viku.

Njótið vel :)

Facebook síða mín : www.facebook.com/gigjas

Ummæli