Kjúklingur í rjómasósu með hvítlauk,sólþurrkuðum tómötum og beikon


Ilmurinn úr eldhúsinu er svo sannalega lokkandi á meðan þessi réttur er í vinnslu. Kjúklingaréttir verða seint þreyttir á mínu heimili þannig  það er gaman að prófa sig áfram og gera rétti sem maður hefur ekki gert áður. Þessi sló í gegn og ég hlakka til að skella í hann aftur. 

Uppskift fyrir 2 (auðvelt að stækka)

30 mínútur 

Innihald:

2 kjúklingabringur
Lítil krukka sólþurrkaðir tómatar
4 hvítlaiksrif
300 ml matreiðslurjómi
1 bolli mozarella ostur
6 sneiðar beikon
Aspas
Grjón
Fersk basilika að vild
Salt og pipar
Paprikukrydd og cayanne pipar

Aðferð:

Ofninn hitaður í 200 blástur

Á pönnu fer smátt skorinn hvítlaukurinn og skornir sólþurrkaðir tómatar(án olíunnar) og það látið ristast á pönnu í um 5 mínútur.

Þá eru tómatarnir teknir af pönnunni og kjúklingurinn settur á og hann steiktur þar til hann er eldaður í gegn (um 7 mínútur á hvorri hlið)



Inn í ofn fer aspasinn og beikonið í 15-20 mínútur. Aspasinn penslaði ég með olíu og kryddaði með salti og pipar.

Grjónin soðin eftir leiðbeiningum á kassa

Þegar kjúklingurinn er eldaður í gegn er hann tekinn af pönnunni og rjómanum,mozarellaostinum, tómötunum og basilikunni skellt á pönnuna ásamt dass af cayan og papriku kryddi(fer eftir þvi hvað þið viljið hafa réttinn spicy) og látið malla þar til osturinn er bráðnaður.



Þá er kjúklingnum bætt úti, grjónunum, aspasnum og smátt skornu beikoni blandað saman við og rétturinn þar með tilbúin 




Njótið vel kæru lesendur, facebook síðan mín er www.facebook.com/gigjas þar sem ég set það nýjasta inn og www.gigjas.com

Ummæli