Egg Benedict


Innihald

Miðað við 2 egg á mann (ég notaði ss 6, þar sem við vorum 3)
1 msk borðedik
Fjölkornabollur/fitty bollur, miða við 1 á mann
Beikonskina (eða sú skinka sem ykkur finnst góð, ein á hvern bollu helming)
Disjon sinnep



Holladaise (Dugar fyrir 4-6 manns)

3 eggjarauður
100gr bráðið smjör
safi úr 1/4 sítrónu
salt, pipar, cayane pipar

Aðferð

Ég byrjaði á að gera sósuna, auðveld Holladaise sósa sem getur bara ekki klikkað

Í hrærivélina fara 3 eggjarauður, sítrónan og krydd eftir smekk
hrært saman þar til þær verða léttar og ljósar
Þá er bræddu smjörinu bætt við og á meðan hrært á hægustu stillingunni


Í pott fer vatn upp að hálfum potti og 1 msk borðedik og látið sjóða
Egg er brotið í glas og látið ofan í pottinn, áður en eggið fer ofan í látiði vatnið snúast í hringi með skeið. Eggin eru látin liggja í vatninu í 3 mínútur og þá tekin uppúr með spaða
Á meðan létt hitaði ég bollurnar með smá smjöri á pönnu og smurði með dijon sinnepi
Í lokinn fer steikt skinka, eggið og sósan á toppinn.


Ef þið viljið nánari lýsingu hvernig eggin eru látin í pottin er hægt að fara inn á youtube og þar eru mörg myndbönd undið leitarorðinu egg benedict.




Njótið vel, æðislegur sunnudags brunch :)

Nýjasta hverju sinni kemur inn á like síðuna mina á facebook www.facebook.com/gigjas

Ummæli