Vatnsdeigsbollur með bananarjóma og dumle kremi

Vatnsdeigsbollur með bananarjóma og dumle karmellukremi

Bolludagur er án efa einn af mínum uppáhalds dögum, eða ætti ég kannski að segja vika. Ég tek alltaf eins og eina svona bollu viku. Síðustu ár hef ég gert svokallaðar sælkera bollur sem innihalda ýmist karmellukrem, súkkulaðikrem eða nutella. Í rjómann finnst mér gott að setja banana eða jarðaber. Ég ætla deila með ykkur minni uppskrift af bollum.



Uppskriftin gerir um 10 bollur en það er auðvitað lítið mál að tvöfalda hana

Ofninn er hitaður í 180

Bollur:
80 gr smjör
2 dl hveiti
3 egg
2 dl vatn
salt á hnífsoddi

Dumle krem:
60 gr dumle karamellur
100 gr ljós súkkulaðihjúpur
teskeið rjómi/mjólk

Fylling:
1 peli rjómi 
Stór stappaður banani eða 2 litlir


Aðferð:

-Smjör og vatn er sett í pott þar til suðan kemur upp og látið sjóða í um 1 mínutu
-Þá er potturinn tekinn af hellunni og hveitinu og saltinu blandað saman við með sleif
-blandan er sett í hrærivélina og látin standa í um 5 mínútur eða þar til það hefur kólnað aðeins
-Þá er einu eggi í einu blandað saman við og þeytt á meðan
-Á bökunarplötu fer svo eins og ein matskeið af deigi og inn í oftn í 20-30 mínútur, eftir 20 mínútur er fínt að byrja fylgjast með bollunum og þær eru teknar út þegar þær hafa tekið aðeins lit. Mikilvægt er að opna ekki ofninn fyrir 20 mínuturnar því þá er hætta á að þær falli.


Meðan bollurnar eru í ofninum er fínt að byrja á að gera rjómann og sósuna. 

Sósa:
Allt sett í skál og brætt yfir vatnsbaði, það þarf að fylgjast með svo það brenni ekki við. þegar súkkulaðið er bráðnað er það sett til hliðar og látið kólna aðeins svo það stífni.

Rjóminn er þeyttur og stöppuðum bönunum hrært saman við.

Rifsberjahlaupið tekið fram og þá ætti þetta allt að fara smella.





Verði ykkur að góðu og borðið endilega yfir ykkur af gómsætum bollum í bollu(vikunni)


Ef þið viljið fylgjast frekar með mér er heimasíðan mín www.gigjas.com og like síðan mín á facebook www.facebook.com/gigjas

Ummæli