Æðislegur mexico brauðréttur, hann er stór svo gott að setja hann í mjög stórt eldfast form eða tvö minni.
Innihald:
ca 15-17 sneiðar fransbrauð
1 rauð paprika
1 græn paprika
1 bakki sveppir
500 ml matreiðslurjómi
2 mexico ostar
1 krukka sólþurkaðir tómatar
hálfur púrrulaukur
1 bréf pepperóní
rifinn ostur
2 msk smjör
salt og pipar
Ofninn hitaður í 200 gráður.
Aðferð:
Skorpurnar eru skornar af brauðinu og brauðið er skorið í litla teninga og sett í smurt eldfast form.
Paprikan og sveppirnir eru steiktir upp úr 2 msk af smjöri, salti og pipar
Í pott fer matreiðslurjóminn og mexico osturinn og látið sjóða við vægann hita þar til osturinn hefur nánast bráðnað. Þá fara smátt skornir tómatarnir ofan í ásamt örlitlu af safanum, eins og 2 msk.
Púrrulaukurinn er skorinn smátt ásamt pepperóníinu og þessu er öllu blandað saman í
eldfasta mótið eins og einn poki af rifnum osti stráð yfir.
Rétturinn fer inn í ofn um 25 mínútur eða þangað til það er komin fínn litur á ostinn.
Njótið vel :)
Ummæli
Skrifa ummæli