Skúffukaka


Hvað er betra en volg djúsí skúffukaka og ísköld mjólk með kaffinu? Ég held það sé fátt betra og þetta þarf ekki að vera flókið. Ég ætla að gefa ykkur uppskrift af minni uppáhalds skúffuköku sem er svo mjúk og góð að hún bráðnar upp í manni.




Tími 40 mínútur

Ofninn hitaður í 180 gráður blástur

Innihald Kaka:

2 bollar hveiti
2 bollar sykur
1/2 tsk salt
200 gr smjör frá MS
4-5 msk kakó
1 bolli sjóðandi heitt vatn
1/2 bolli hrein súrmjólk frá MS
2 egg
1 tsk matarsóti
2 tappar af vanilludropum

Innihald krem:

200 gr smjör
500 gr flórsykur
5 msk kakó
3 msk kaffi
kókos

Aðferð kaka:

Hveiti, sykri og salti er blandað saman í skál

Smjör er brætt við vægan hita í potti og kakói og vatni bætt við þegar það hefur bráðnað alveg

Í aðra skál eru eggin sett og þau þeytt aðein með gaffli.  Súrmjólk, matarsóta og vanilludropum bætt út í og hrært.

Næst er súrmjólkurblöndinni bætt út í hveitiblönduna og hrært aðeins og síðan kakóblöndunni úr pottinum og hrært vel þar til allt hefur blandast saman.

Þá er deigið sett í skúffu, skúffan sem ég notaði var 40x30 á stærð. Skúffan er smurð með smjöri eða notaður bökunarpappír eins og ég gerði.

Inn í ofn í 25 mínútur eða þar til kakan hefur tekið aðeins lit.

Aðferð krem:

Smjör er brætt við vægan hita í potti og þegar smjörið hefur alveg bráðnað er flórsykri, kakói og kaffi blandað saman við og hrært með sleif. Kremið þarf að hræra með sleifinni í smá tíma til að fá það silki mjúkt og glansandi.

Áður en ég set kremið á þá sting ég með gaffli í alla kökuna og smyr svo kreminu á hún toppuð með kókos.'



Best volg með ííískaldri mjólk :)

Njótið vel

Fleiri uppskriftir frá mér er að finna á www.gigjas.com og inn á like síðunni minni á facebook www.facebook.com/gigjas 

Ummæli