Kjúklingabræðingur með guacamole og beikoni - Ketó


Æðislega góður réttur sem sló heldur betur í gegn á heimilinu og einnig hjá þeim stutta sem er 1 árs. Rétturinn hentar líka þeim sem eru á ketó. 




Innihald:

fyrir 4

4 Kjúklingabringur
4 Avocado
1 Lime
1 Tómatur
1/2 Rauðlaukur
6 Beikonsneiðar
Gratín ostur frá gott í matinn
Olía
Salt og Pipar
Chilli krydd
Kóríander

Aðferð:

Skref 1:
Kjúklingabringurnar eru kryddaðar með salti,pipar og chilli kryddi og steiktar í olíu á pönnu við miðlungs hita þar til þær eru eldaðar í gegn. Lykil atriði að pannan sé ekki of heit því þá getur kjúklingurinn brunnið að utan, en við viljum hafa hann mjúkan og góðan. 

Skref 2:
Á meðan kjúklingurinn er á pönnunni er guacamole og beikonið græjað.
Beikonið er sett í 200 gráðu heitan ofn þar til að það er orðið stökkt þá er það tekið út og mulið.
Ekki slökkva á ofninum þar sem kjúklingurinn fer líka inn í ofn.

Guacamoleið er auðvelt, avocado er stappað og niðurskornum tómötum, rauðlauk, lime safa og salti og pipar er bætt við og maukað með gaffli.

Skref 3: 
Þegar kjúklingabringurinar eru tilbúnar er guacamole sett ofan á, ostinum stráð yfir og beikon bitunum stungið í.
Næst fer kjúklingurinn inn í ofn í aðeins 3-5 mínútur svo að osturinn bráðni og hann næst borin fram heimtur með fersku kóríander eftir smekk. 


Njótið vel, Gígja S 

Ummæli