Mexico Delúx Ídýfa


Ég hef ekki nógu mörg lýsingarorð til að lýsa hverju góð þessi ídýfa er. Hún er rjómakennd, smá spæsí en samt svo fersk. Mæli svo sannarlega með henni í partýið! 



Dugir fyrir amk 8-10 hóflegar manneskjur

Innihald

400 gr rjómaostur frá gott í matinn
1 dós 18% sýrður rjómi frá gott í matinn
2 hvítlauks rif
2 matskeiðar red hot sósa
1 lime (safinn) fleiri til skrauts / val
200 gr pizzaostur frá gott í matinn
400 gr mais
150 gr fetakubbur frá gott í matinn
Jalapeno eftir smekk / ég notaði ca hálfa krukku
1/2 rauðlaukur
1/2 bolli ferskur kóríander
Nachos flögur eftir smekk



Ofninn er hitaður í 200 gráður blástur

Aðferð:

Skref 1:
Í blandara eða matvinnsluvél, hrærið saman rjómaost, sýrðan rjóma, 100gr pizzaost og lime safa þar til blandan verður silki mjúk

Skref 2:
Smátt skorin rauðlaukur, kóríander, hvítlaukur, red hot sósa, jalapeno og smátt skornum fetakubbnum er blandað saman við ostablönduna og sett í eldfast form.

Skref 3:
Restinni af pizzaostinum er dreyft yfir og ídýfan sett í ofninn í um 15-20 mínútur eða þar til osturinn er byrjaður að brúnast. 

Ég skeytti svo ídýfuna með fetaost, kóríander, hot sósu, og lime



Njótið vel ! 


Ummæli