Sumarlegur borgari með grilluðum ananas, maribó osti og bestu grillsósunni



Ef þú villt komast í sumar skap þá mæli ég með þessum æðislega sumarlega hamborgara beint á grillið.  Hamborgara sósan er eins og sósan sem þið fáið á shake shak hamborgarastaðnum ef þið þekkið hann, þið verðið ekki fyrir vonbrigðum. Hún er æðisleg með borgaranum og karteflunum. 

Fyrir 4 hamborgara

Innihald:
4 stórir hamborgarar
4 hamborgarabrauð
Óðals Cheddar ostur í sneiðum 
salt og pipar 
salatblöð
rauðlaukur
4 sneiðar ananas

Aðferð hamborgari:
Hamborgararnir eru kryddaðir og fara á grillið á sama tíma og ananas sneiðarnar.
Hamborgarinn er grillaður í um 5-7 mínútur á hvori hlið og ananasinn í sambærilegan tíma, þið sjáið þegar hann hefur tekið lit. 

Innihald sósa:
200 gr. rjómaostur frá gott í matinn
3 msk tómatsósa
2 msk gult sinnep
2 msk fín skornar súrar gúrkur
1/2 tsk hvítlaukssalt
1/2 tsk cayanne pipar 

Aðferð sósa:
Gúrkurnar skornar smátt og öllu hrært vel saman, fínt að láta standa í nokkra tíma í ískáp.

Innihald karteflur:
3 meðalstórar grillkarteflur 
Olía
salt og pipar
Timjan

Aðferð karteflur:
Karteflurnar eru skornar langsum í stærð eins og stóarar franskar
Þær eru settar í kalt vatn í um 30 mínútur
Næst eru þær þerraðar vel og velt upp úr olíu, salti og pipar
Karteflurnar eru settar í álbakka og grillaðar í um 15 mínútur


Njótið vel, Gígja S

Ummæli