Stökkur fiskborgari í brioche brauði með rjómaostakremi

Prófaði að skella í fiskborgara og viti menn hann sló heldur betur í gegn, æðislega ferskur og góður. Fiskurinn stökkur að utan og mjúkur og að innan. Í brioche hamborgarabrauði með æðislegu rjómaostakremi.





Uppskrift fyrir 4


Innihald sósu:

1 rjómaostur með gralauk og lauk frá gott í matinn

safi úr 1/4 sítrjónu

salt og pipar eftir smekk

2 pressuð hvítlauksrif


Aðferð sósu:

Öllu hrært saman, fínt að byrja á því að gera sósuna/kremið og leyfa því að standa aðeins.



Innihald borgari:

4 bitar þorskur um 200 gr hver

4 brioche hamborgarabrauð

1/2 bolli hveiti

2 egg ( pískuð saman )

1 bolli brauðraspur

salt og pipar eftir smekk

1 tsk paprikukrydd

1/2 tsk cayanne pipar

Salatblöð

fín skorin rauðlaukur

Sítróna


Aðferð borgari:

Hitið ofninn í 200 gráður blástur

Hitið vel af olíu á pönnu við miðlungs hita, olían þarf að ná eins og 1/2 cm upp í pönnuna

Setjið egg, brauðrasp og hveiti allt í sitthvora skálina og bætið kryddunum út í hveitið

Fiskunum er þá velt upp úr hveitinu, dýpt í eggin og síðast velt upp úr brauðraspinum

Fiskurinn er steikur á sitthvori hliðinni í 3 mínútur þar til kröstið er orðið brúnleitt, þá er fiskurinn færður inn i ofn í 5 mínútur.

þegar 1-2 mínutur eru eftir þá eru brauðin sett inn og hituð

Um leið og fiskurinn kemur úr ofninum er sítrónusafi kreistur yfir

Rjómaostakreminu er smurt inn í bæði brauðin áður en fiskurinn, salati og rauðlaukurinn fer á. 






Mæli svo sannarlega með þessum, njótið vel


Gígja S 

Ummæli