Fékk að gera þessa fallegu hnetusmjörskossa fyrir forsíðu jólablaðs gott í matinn. Þeir eru einstaklega góðir:) uppskrift:
U.þ.b. 25 stk.
Innihald:
1 poki Hersey's Kisses súkkulaði
100 g smjör við stofuhita
2 msk mjólk
½ bolli hnetusmjör
1 stk stórt egg
2 tsk vanilludropar (2-3 tsk)
½ bolli sykur
2 bollar hveiti
1 tsk matarsódi
½ bolli púðursykur
½ tsk salt
• sykurskraut að vild
Aðferð:
Hitið ofninn í 190°C. Takið bréfin af kossunum.
Hrærið vel saman smjöri og hnetusmjöri í hrærivél. Bætið við sykri og púðursykri og hrærið vel þar til létt. Bætið eggi, mjólk og vanilludropum við og hrærið vel. Hrærið hveiti, salti og matarsóda saman í annarri skál og setjið út í hnetusmjörsblönduna.
Kökurnar eru mótaðar í litlar kúlur á bökunarpappír og bakaðar í 7-9 mínútur í miðjum ofni. Kossarnir eru settir á kökurnar um leið og þær koma út úr ofninum og þær varlega færðar af bökunarplötunni með spaða.

Ummæli
Skrifa ummæli