Skinkuhorn


Ég ákvað að skella í skinkuhorn í tilefni þess að við erum á leiðinni til Akureyrar á skíði. Þau eru bæði svo fín í bílanesti og í fjallið. Skinkuhornin eru góð við öll tækifæri þar sem ungir sem aldnir eru sólgnir í þetta. 



Innihald skinkuhorn:

Uppskrift gerir 24 skinkuhorn.

400 gr hveiti
3 dl volgt vatn
1 poki þurrger 11,8 gr
1 tsk salt
1 msk sykur
100 gr smjör við stofuhita

Fylling:

Í fyllinguna fer 250 gr skinku og beikon smurostur, rifinn pizza ostur og 200 gr skinka

Toppur:

Egg
Rifinn pizza ostur

Aðferð:


Hitið ofninn í 220°C

1. Gerið er leyst upp í volgu vatni
2. Skinkan er skorin í litla teninga og henni hrært saman við smurostinn

3. Þurrefnunum er blandað saman í skál

4. Blandið smjörinu þurrefnin og í lokinn vatninu með gerinu

5. Degið er hnoðað vel og skorið í 3 jafna bita




6. Hver biti fyrir sig er flettur út í hring og skorin í 8 jafna bita, gott er að nota pizzuskera


7. Skinkublandan ásamt pizza ost er sett á feita endann og rúllað upp frá þeim enda og lokað á hliðunum.




8. Þegar búið er að rúlla öllum upp er þeim leyft að standa í 20-30 mínútur og næst pensluð með hrærðu eggi og pizza ost ef þið eigið afgang.




9. Bökuð í 10 mínútur


10. það á til að leka úr skinkuhornunum, það er ekkert mál að taka teskeið og stinga ostinum aftur inn á meðan skinkuhornin eru volg. 







Njótið vel :) 

Ummæli