Skyrkökur í skotglösum

Bláberja og oreo skyrkökur í litlum plastglösum




Hef gert þessar nokkrum sinnum og þær slá alltaf jafn mikið í gegn og ekki skemmir fyrir hvað þær eru fallegar fyrir augað. Ég skellti í 125 stk af þessum fyrir fermingu í dag, tekur alls ekki langann tíma ef 4 hendur hjálpast að. 

Mæli hiklaust með þessum í fermingarveislurnar sem eru á næsta leiti.

Uppskrift 125 stk.
Það er auðvelt að stækka og minnka uppskriftina. 1 rjómi á móti 1 skyri gerir um 40 stk. osfr. 

3 x 500 ml rjómi
3 x 500 gr bláberja skyr.is
400 gr oreo kex
125 skotglös 4,9cl (Glösin fékk ég í bónus 25 saman í pakka)
Litlar skeiðar
Sprautupoki
Bláber til skrauts

Aðferð:
500ml rjómi er þeyttur og einni dós af skyrinu blandað varlega saman við með sleif.
Oreo kexið er mulið í matvinnsluvél eða í góðum blandara
Ef þið eruð tvö að gera þetta saman er sniðugt að einn sjái um skyrblönduna og annar kexið og þessu svo skipt í glösin. Kex-skyr-kex-skyr. ef það er afgangur af oreoinu er hægt að skreyta með því á toppnum ásamt bláberjunum. 


Settar í ískáp í að minnsta kossti 2 tíma áður en þær eru bornar fram.





Facebook síðan mín : www.facebook.com/gigjas

Ummæli