Kjúklinga alfredo lasagne

Dásamlega gott kjúklinga Alfredo lasagna. Ég er búin að vera í hollustunni í janúar en það má nú alveg leyfa sér gúmmelaði eins og þetta öðru hvoru. Þetta lasagne er rosalega bragðgott og algjört ferðalag fyrir bragðlaukana.



Uppskrift fyrir 6
(Ég gerði uppskrift fyrir 6 þó svo við erum bara 2 í heimili, rétturinn er rosalega góður daginn eftir.)

Undirbúningur 30 mín ca
Eldun 25-30 mínútur

Innihald:

4 stórar kjúklingabringur
1 bakki sveppir
1 stór laukur
3 hvítlauksrif
200-250 gr beikonkurl
1 Matreiðslurjómi frá gott í matinn
1 bolli rifinn parmesan ostur
1 poki mozarella ostur frá gott í matinn
lasagne plötur
Parsley krydd, eða ferskt parsley
salt og pipar
hvítlauksalt



Ofninn hitaður í 180 gráður 

Aðferð:

Gott að byrja á að leggja lasagne plöturnar í volgt vatn til að mýkja þær upp

Bringurnar eru skornar þvert í gegn og steiktar á pönnu með salti og pipar þar til þær eru eldaðar í gegn. Þá eru þær settar til hliðar.

Sveppir, laukur, hvítlaukur og beikon steikt á pönnu með hvítlaukssalti og pipar þar til það hefur brúnast. Þá er matreiðslurjómanum hellt út í og suðan látin koma upp. Þá fer rifinn parmesan ostur og msk parsley krydd út í og látið malla í nokkrar mínútur. 





Í eldfast mót fer svo: Rjómablandan - lasagne plötur - kjúklingur - mozarella ostur. Þetta er endurtekið tvisvar og endað með mozarella ostinum og smá parsley kryddi. 

Borið fram með hvítlauksbrauði eða því sem ykkur finnst gott.



Njótið vel, Gígja S.


Síðan mín er www.gigjas.com og þar má finna fleiri uppskriftir.

Ummæli