Páskabomba

Tók smá forskot á páskasæluna og bakaði þessa dásemdar köku. Kakan sjálf er svakalega mjúk og góð og bráðnar uppí manni. 



Innihald:

Kaka
450 gr smjör við stofuhita
450 gr sykur
450 gr hveiti
6 stór egg
1 tsk lyftiduft
1 tsk vanilludropar
gulur matarlitur

Toppur
500 gr smjör við stofuhita
750 gr frórsykur
1 tsk salt
1 msk mjólk
1 tsk vanilludropar
200 gr súkkulaði (ljóst eða dökkt, ég notaði ljóst)
Mini eggs frá calsbury 
gulur matarlitur

Aðferð:

Ofninn er settur á 160c blástur

-Smjör og sykur er sett í hrærivélina og þeytt þar til blandan er létt og ljós, þá er eggjunum, hveitini, vanillu. lyftidufti og tsk matarlit bætt útí og hrært vel,




-Ég setti kökurnar í 3 form, en hefði geta sett hana í 2 þar sem ein varð mjög þunn. Þannig mæli með að smyrja formin vel með smjöri og setja deigið í 2 form og inn í ofn í 35-40 mínútur eða þar til þú getur stungið gaffli í án þess að kakan festist á. 

-Á meðan er kakan er inni í ofni er fínt að byrja á að gera kremið

-í hrærivélina fer smjör, salt, vanilla, flórsykur, mjólk og matarlytur og hært þar til kremið er orðið mjúkt og fínt. 

-Ein lúka af súkkulaði eggjunum er sett í blandara eða matvinnsluvél og mulið fínt.




-Þegar botnarnir eru komnir út og þeir aðeins kólnaðir þá er kremið sett á kökuna ásamt súkkulaðieggja minslunni á milli og kakan sett í kæli í 15-20 mínútur áður en súkkulaðibráðin er sett á. 





-Súkkulaðið er brætt yfir vatnsbaði og aðeins látið kólna áður en það er sett á kökuna, það er gott að byrja á að setja súkkulaðið í miðjuna og dreifa því fram að köntunum með skeið, og láta það leka aðeins meðfram köntunum.

-Kakan er svo skreytt með eggjum og afgangs smjörkremi. Ég gerði toppana með stút frá wilton sem heitir 2D. Hann er tilvalin til að gera rósa munstur. 





Njótið vel og gleðilega páska kæru lesendur.


Ef þið viljið fylgjast betur með þá er heimasíðan mín www.gigjas.com og like síðan mín á facebook www.facebook.com/gigjas

Ummæli