Kanilsnúðar með karmellu og pekanhnetum

Gerði þessa dásamlegu kanilsnúða sem slóu heldur betur í gegn. Kanilsnúðauppskriftin sjálf er rosalega mjúk og góð en ég hef gert hana nokkrum sinnum með glassúri. Ég prófaði núna að setja karmellusósu og pekanhnetur og það slær glassúrinu við. 



Uppskrift fyrir 8-10 manns


Innihald:

1 pakki þurrger (sá sem eg notaði var 11 gr)
3/4 bolli mjólk
1/4 bolli sykur
1/4 bolli volgt vatn
1 tsk vanilludropar
1 egg
1 tsk salt
1/4 bolli brætt smjör
3 og hálfur bolli hveti
1/4 bolli bráðið smjör til að pensla í lokinn

Kanil fylling:
100 gr lint smör
1 bolli sykur
2 msk kanill

Karamellusósa:
1 bolli púðusykur
4 msk smjör
1 tsk vanilludropar
1/2 tsk salt
1 msk mjólk
80gr pekanhnetur

Ofninn hitaður í 180 gráður, þegar deigið er tilbúið

Aðferð:
Volgt vatnið og þurrger er sett í glas og látið bíða í nokkrar mínútur.
Egg, mjólk, bráðið smjör, salt og sykur er sett í hrærivélina og hrært þar til það hefur blandast vel saman (best að nota krókinn, hnoðarann á hrærivélinni).
Næst fer þurrgersblandan og hveitið út í og hnoðað vel.

Takið deigið úr hrærivélinni, gerið úr því kúlu, penslið með olíu og setið í skál með plastfilmu yfir og látið það standa í um 1 og hálfa klst eða þar til það hefur nánast tvöfaldast.




Þegar degið er tilbúið er smjörpappír lagður á borðið og hveiti dreift yfir. Deigið er sett ofaná og það flatt út í ferhyrning. 

Kanil blandan er nú sett ofan á og dreyft vel úr henni og svo er deginu rúllað upp og skorið í jafna bita.



Í eldfast form fer smjörpappír og kanilsnúðunum raðað í formið og þeir penslaðir með bræddu smjöri.


Inn í ofn í 25 mínútur eða þar til það er komin brúnleiddur gljái á þá.

Á meðan snúðarnir eru inn í ofni er byrjað á karmellunni. Öll hráefnin nema pekanhneturnar eru sett í pott og látið sjóða við vægan hita í um 5 mínútur, það þarf að hræra vel svo karmellan brenni ekki. Pekanhneturnar eru skornar í bita og þeim bætt útí og potturinn tekinn af hellunni. 




Þegar snúðarnir er komnir út er karmellan sett yfir og þeir tilbúni.





Æðislega góðir volgir með ís :)

Njótið vel kæru lesendur, getið fylgst frekar með mér á www.gigjas.com og www.facebook.com/gigjas

Ummæli