Smákökur með hnetusmjöri og Rolo súkkulaði

Smákökur með hnetusmjöri og Rolo súkkulaði



Þessi uppskrift er uppáhalds smáköku uppskriftin mín og hægt er að gera hana með alskonar nammi í staðin fyrir róló. Ég hef til dæmis prófað að nota reeses penut butter cups, snickers og MogM og það kemur allt rosalega vel út. Núna prófaði ég að nota Rolo súkkulaði og það er æðislegt, mæli með því að prófa það fyrir jólin :)

Uppskriftin er fljótleg og einföld uppskrift gerir um 15 kökur




Innihald;
100gr smjör
1 bolli hveiti
2/3 bolli púðusykur
3 msk hnetusmjör / gróft eða fínt
150 gr róló (2 og hálf lengja)
1 egg
1/2 tsk salt
1/2 tsk lyftidyft
1 tsk vanilludropar

Ofninn er hitaður í 180 gráður blástur

Aðferð;

Smjörið er brætt í potti
Næst er smjörinu og púðusykrinum blandað saman og hrært vel
Eggi og hnetusmjöri er síðan bætt út í og næst restinni.
Það er fínt að skera rólóið er tvennt eða smærra.

Degið er sett í skál og inn í ískáp í klukkustund



Næst eru mótaðar litlar kúlur, fínt að íta aðeins niður á kúlurnar með skeið áður en þær fara inn í ofn. Það mun líklega leka aðeins af karamellunni út fyrir kökurnar en það er allt í lagi það er nóg af henni inn í kökunum.

Kökurnar fara í ofninn í 10-12 mínútur og kældar í 10 mínútur áður en þær eru teknar af plötunni.


Njótið vel :) 


Finnið fleiri uppskriftir eftir mig á like síðunnu minni á facebook. www.facebook.com/gigjas og www.gigjas.com

Ummæli