Rjómaostakúla með pistasíum og Jóla Brie með döðlum og pekanhnetum

Ég fékk vinkonu mína í mat og gerði þessa dásamlegu osta sem fleiri fengu svo að njóta. Pistasíu osturinn kom rosalega á óvart og öllum fannst hann algjört lostæti. Samsetningin er mikið ferðalag fyrir bragðlaukana. Desember er tími þar sem fólk kemur saman svo það er sniðugt að bera fram osta og salöt, það slær einhvern veginn alltaf í gegn. Þannig að ég mæli með þessum ostum í jólaboðið, saumaklúbbinn og spilakvöldið núna í desember.


Innihald rjómaostakúla:
400 g rjómaostur frá Gott í matinn
50 g trönuber
1 bolli pistasísuhnetur
2 msk dijon sinnep
2 tsk hvítlauksduft

Aðferð:
Skurninn er tekinn utan af pistasíunum og þær muldar með hníf.
Öðru er blandað saman í skál og hnoðað í kúlu.
Kúlunni er síðan vellt upp úr pistasíunum



Innihald Jóla Brie:
Jóla Brie ostur frá MS
Agave síróp dökkt
saxaðar döðlur og pekan hnetur eftir smekk

Ég skar rákir í ostinn svo sírópið fór aðeins ofan í hann
Döðlurnar og pekanhneturnar eru saxaðar smátt, settar á ostinn og sírópið yfir



Borið fram með kexi

Njótið vel :) Ég set alltaf það nýjasta inn á facebook síðuna www.facebook.com/gigjas

Ummæli