Pizzasnúðar með sterku pepperoni og mexico osti


Pizzasnúðar með sterku pepperoni og mexico osti



Ég skellti í þessa dásamlega góðu pizzasnúða í dag í rokinu og rigningunni. 
Fyrir mánuði síðan kom lítill gutti í heiminn og ég viðurkenni það var smá challenge að vera ein heima og baka. Það ætti ekki að taka nema klukkustund að útbúa snúðana með því að láta degið lyfta sér en þetta voru alveg góðir 2 tímar hjá mér með drykkjar og kúkableyjupásum en það er bara stemmari! 
Nú eru páskarnir að koma og fólk ýmist að kíkja í bústað eða upp í fjöll, þá er einstaklega gott að taka með sér nýbakaða snúða eða skinkuhorn. Ég deildi með ykkur uppskrift af skinkuhornum í fyrra fyrir páskana og ég set linkinn af þeim herna fyrir neðan líka:

http://www.gottimatinn.is/matarblog/gigja-s.-gudjons/skinkuhorn-fyrir-skidaferdina/232
Ofninn hitaður á 180 gráður

Uppskrift gerir um 30-40 snúða
Tími: klukkustund



Deig:
600 ml volgt vatn
20 gr þurrger
3 tsk sykur
3 msk olía
1 egg
2 tsk salt
1 kg hveiti / svo meira til að hnoða í endann

Fylling
Sterkt pepperóní
skinka
mexico ostur
pizza ostur
pizzasósa
oregano krydd

Aðferð:
Gerið er sett í volgt vatnið og látið bíða í nokkrar mínútur
þá er sykri, olíu, eggi og salti blandað saman við og hrært og í lokinn hveitið og hnoðað með höndunum.
Deigið er síðan látið lyfta sér í um hálftíma


Þegar deigið hefur lyft sér er það flett út, það er fínt að setja meira hveiti á degið áður en það er flett út svo það festist ekki við undirlagið.
Síðan er áleggið sett á, rúllað upp og skorið í litla bita - mexico osturinn er rifinn niður með rifjárni




Ég valdi að setja snúðana í tvö eldföst form en auðvitað er hægt að raða þeim á plötu líka.



Bakið í 15 mínútur eða þangað til snúðarnir hafa tekið góðan lit




Gleðilega páska kæru lesendur,

Fleiri uppskriftir frá mér er hægt að finna á like síðunni minni á facebook www.facebook.com/gigjas og á heimasíðunni www.gigjas.com

Ummæli