Afmæliskaka


Afmæliskaka



Ég gerði þessa afmælisköku fyrir kærastann á afmælinu hans, þessi kaka heitir einfaldlega bara afmæliskaka eða birthday cake á ensku ef að þið googlið hana. Ég var að horfa á chefs table um daginn á netflix sem eru æðislegir þættir um matreiðslufólk og þar fékk ég hugmyndina að skella í eina birthday cake.

Uppskriftin af vanillubotnunum er uppáhalds botna uppskriftin mín og ég nota hana við öll tilefni, ég nota þessa sömu uppskrift þegar ég geri brúðartertur, en þá auðvitað án confetti skrauts. Botnarnir eru rosalega mjúkir og góðir.

Uppskriftin sem ég gef ykkur er stór, deigið dugir í þrjú form og dugir vel fyrir um 25 manns 

Innihald kaka:

300 gr smjör
2,25 bolli sykur
6 egg
1 msk vanilludropar
4,30 bolli hveiti
1 og 1/2 msk lyftiduft
1 tsk salt
1 og 1/2 bolli mjólk
6 msk confetti sykurskraut

Best er að hafa öll hráefnin við stofuhita þegar byrjað er að baka

Aðferð:

Ofninn er hitaður á 180 gráður blástur

Smjör og sykur þeytt saman í hrærivélinni þar til blandan er létt og ljós, þá er einu eggi í einu bætt við og hrært

Hveiti, salti og lyftidufti er blandað saman í skál, fínt að sigta það saman.

Síðan er hveitiblöndunni, vanilludropunum og mjólkinni bætt út í. Setjið mjólkina og hvetið út í í tvemur pörtum.

Í lokinn er sykurskrautinu blandað saman við.

þegar degið er orðin mjúkt þá er því skipt á milli í 3 smurð form og inn í ofn í 30-35 mínútur, eða þar til botnarnir eru orðnir dökk brúnir, þó kakan verði svoldið dökk að utan þá er hún fallega ljós gul að innan.



Tips: gott er að klippa smjörpappír og setja í botninn á mótinu og bera vel af smjöri í kanntana til að kakan renni úr forminu. Einnig að bera deigið vel út í alla kannta á mótinu svo að það verði sem minnsta búnga í miðjunni þegar kakan hefur bakast.

Innihald Smjörkrem:

500 gr smjör
1000 gr flórsykur
2 msk rjómi EÐA 2 eggjahvítur
1/2 tsk salt
2 tsk vanilludropar
Hvítur matarlitur (fæst í allt í köku)
ég setti mjög lítinn matarlit í kökuna og sá eftir á að hún var aðeins gul þannig ég myndi setja meiri matarlit næst. 

Aðferð smjörkrem:

Smjörið er þeytt þar til það er orðið létt, þá er flórsykri og öðrum hráefnum blandað varlega við og þeytt. Það er gott að setja viskustykki yfir hrærivélina svo það fari ekki flórsykur út um allt. 

Þegar kakan er tilbúin er hún látin kólna alveg áður en kremið er sett á.

Mér finnst gott að nota sprautupoka til að setja kremið á milli botnanna svo hæðarnar verði jafnar, þá læt ég kremið fara aðeins út fyrir kantanna svo það sé þæginlegt að smyrja endanna. Til að jafna endana nota ég beinan kökuspaða en ef þið eigið ekki þannig þá er hægt að nota beina bakhlið á stórum hníf.

Passið að taka eins og 1 bolla af kremi til hliðar til að skreyta toppinn, þið getið notað hvaða stút sem þið eigið og ykkur finnst flottur til að skreyta toppinn. 

Tips: Láta efsta botninn snúa á hvolfi svo að toppurinn hafi skarpa enda



Síðan getið þið leikið ykkur með sykurskrautið og skreytt hana eins og þið viljið að utan

Lookið á kökunni heitir naked cake eða nakin kaka og er mikið í tísku núna.





Njótið vel,
fleiri uppskriftir frá mér er að finna inn á vefsíðunni www.gigjas.com og www.facebook.com/gigjas





Ummæli