Ofnbakaður Þorskur í Sítrónu Rjómasósu


Þessi fiskiréttur er rosalega ferskur og góður, hann er líka fljótlegt að gera og lítið uppvask þar sem pottar og pönnur koma ekki við sögu.



Uppskrift fyrir 3-4 

undirbúningur 5 mín
eldun 20-25 mín
heildartími 25-30 mín

Ofninn er hitaður í 200 gráður

Innihald:

4-5 þorskstykki
50 gr smjör
1/2 bolli rjómi
2 msk hunangs dijon sinnep
1 og hálf msk sítrónusafi
salt og pipar
Shallot laukur
parsley krydd og sítrónusneiðar

Aðferð:

-Fiskurinn er settur í eldfast form og hann kryddaður með salti og pipar á báðum hliðum

- Smátt skorinn shallot laukurinn er næst settur yfir fiskinn

- Í skál fer smjör, rjómi, dijon, sítrónusafi, salt og pipar og hitað í örbylgjuofni tvisvar sinnum í 30 sek og hrært á milli


- Síðan er sósunni hellt yfir fiskinn og hann kryddaður með parsley og skreyttur með sítrónusneiðum


Fiskurinn er næst settur inn í ofn í 20-25 mínútur, fer svoldið eftir hversu þykk fiskstykki þið eruð með

Með fisknum var ég með grjón og hvítlauksbrauð, hvítlauksbrauðið fór inn í ofn á sama tíma og fiskurinn og grjónin í pott einnig á sama tíma.


Njótð vel :)

Getið fylgst með mér á síðunni minni www.gigjas.com og www.facebook.com/gigjas 

Ummæli