Litlar ostakökur með saltri karamellusósu


Litlar ostakökur með saltri karamellusósu



Þessar litlu ostakökur eru svakalega bragðgóðar og bráðna uppí manni. Kökurnar gerði ég fyrir babyshower hjá vinkonu minni og vöktu þær mikla lukku hjá gestum. 
Þetta eru kannski ekki fljótlegustu kökurnar að gera, er þær eru svo sannarlega tímans virði. 

Gerir 18-20 kökur í möffins stærð

Ég notaði möffinsform úr áli utan um 12 stk og þær verða aðeins fallegri í laginu. En ef þið eigið ekki þannig form þá eru bréf formin líka næg.

Ofninn er hitaður í 160 gráður

Innihald:

Kaka:
18-20 möffins form
10 lu kexkökur
1 msk púðusykur
3 msk brætt smjör
400 gr rjómaostur frá gott í matinn
1/2 bolli sykur
1 egg

karamella:
1/2 bolli sykur
2 msk smjör
3 msk rjómi
sjávarsalt

Aðferð kaka:
-Kexið er mulið í matvinnsluvél eða á annan hátt og bræddu smjöri og púðusykri blandað saman við. 
-Kexinu er síðan þjappað ofan í möffins formin.
-Rjómaostur, egg og sykur fara saman í hrærivélina og þeytt þar til blandan verður mjúk.
-Þá fer umþb ein matskeið ofan í hvert möffinsform og kökurnar settar í ofninn í 20 mínútur.
-Þegar kökurnar koma út eru þær kældar í ískáp í um klukkustund áður en karamellan er sett á. 
Það er eðlilegt að kökurnar falli aðeins í ískápnum.




Aðferð sósa:

Byrjið ekki á sósunni fyrr en kökurnar hafa verið kældar.

-Sykurinn er bræddur í potti þar til hann er orðin alveg kekkjalaus og ljós brúnn, það þarf að hræra með sleif allan tímann.
-Næst er smjörinu bætt við og potturinn tekin af hellunni. Rjóminn fer út í lokinn og hrært þar til karamellan verður silki mjúk.
-Ef hún er að kekkjast þá er hægt að setja hana aðeins aftur á helluna.
-1 teskeið af karamellu er sett yfir kökurnar ásamt dass af sjávarsalti og kökurnar kældar

Kökurnar gerði ég daginn áður og lét vera í ískáp yfir nóttu.



Njótið vel :)

Fleiri uppskriftir frá mér er að finna inná www.gigjas.com og www.facebook.com/gigjas 


Ummæli