Súkkulaði og berjabomba






Þessi kaka er dásamlega góð og ekki skemmir það fyrir hvað hún er falleg. Æðisleg í veisluna fyrir hvaða tilefni sem er. Kökubotnana er auðvelt að gera og sniðugt að gera þá daginn fyrir og eiga þá bara eftir að setja kökuna saman svo að berin séu sem ferskust.

Ofninn er hitaður í 180 gráður blástur

Dugir fyrir 12-15 manns

Innihald

kaka:
3 bollar hveiti
3 bollar sykur
1 1/2 bolli kakó
1 matskeið espresso duft 
1 matskeið matarsóti
1/2 matskeið lyftiduft
1 teskeið salt
4 egg
300 gr grísk jógúrt frá gott í matinn
2 bollar vatn
1/2 bolli olía
1 matskeið vanilludropar

Rjómi:
500 ml rjómi
1/2 flórsykur
1 teskeið vanilludropar

Súkkulaðibráð:
200gr súkkulaði
150gr smjör

Ber:
Jarðaber, bláber og hindber eða þau ber sem ykkur finnst góð

Aðferð:

kaka:
Öll þurrefnin eru sett í hrærivélina og þeim létt blandað saman með sleif
Næst fer allt blauta innihaldið í hrærivélina og allt hrært saman.
Kökudeiginu er skipt jafnt á milli í þrjú smjurð hringform og inn í ofn í 30-35 mínútur.

Rjómi:
Rjóminn er þeyttur og flórsykri og vanilludropum er bætt við í lokinn og hrært

Súkkulaðibráð:
Smjörið er brætt í potti þar til það byrjar að búbbla, þá er því hellt yfir mulið súkkulaðið í hitaþolinni skál og hrært þar til það verður silkimjúkt. Athugið að útbúa ekki súkkilaðibráðina fyrr en þið eruð tilbúin að stafla kökunni upp, því súkkulaðið stífnar.

Ber:
Berin eru skorin niður að vild, best að hafa þau frekar smátt skorin fyrir miðjuna en hægt að hafa þau heil á toppnum.

Þá er bara að byrja að stafla kökunni:
Kökubotn - súkkulaði- rjómi- ber … Kökubotn - súkkulaði - rjómi - ber … Kökubotn - súkkulaði - ber

Njótið vel, Uppskriftirnar mínar er hægt að finna inn á www.gottimatinn.is og inn á www.gigjas.com , einnig set ég nýjustu færslurnar hverju sinni inn á like síðuna www.facebook.com/gigjas

Ummæli