Páska Gotterí


Æðislega góðir og páskalegir kökubitar með kaffinu



Uppskrift gerir um 30 bita

Innihald:
400 gr hafrakex 
1 bolli kókos
200 gr smjör
400 gr súkkulaði / ég notaði hvítt en það er líka hægt að nota mjólkursúkkulaði
160 gr cadbury súkkulaðiegg

Skref 1 

Kexið er mulið smátt í matvinnsluvél og kókos og bræddu smjöri blandað saman við.
Blöndunni er svo þjappað vel ofan í bökunarform eða sambærilegt form. Það er gott að hafa bökunarpappír ofan í forminu svo það sé auðvelt að taka bitana upp úr.

Skref 2
Súkkulaðið er brætt yfir vatnsbaði og því dreift jafnt yfir kexbotninn og eggjunum raðað ofan á.

Skref 3
Páska Gotteríið er síðan kælt í að minnsta kosti klukkustund áður en það er borðið fram.
Bitarnir geymast síðan í kæli í dágóðan tíma í lokuðu íláti. 




Njótði vel, Gigja S 

Ummæli