Kaffi og Kanil Skyrkaka


Skyrkaka með kaffi og kanil 




Ég er komin með æði fyrir öllu með kaffibragði, ég prófaði kaffi og vanilluskyr um daginn og hugsaði þetta bragðast eins og desert. Svo ég ákvað að skella í einn kaffi desert. Kaffi og kanill fer líka svo einstaklega vel saman.

Innihald:

200 gr. LU kanil kex
100 gr. Smjör frá MS
500 gr. Rjómi frá Gott í matinn
600 gr. Kaffi og vanilluskyr frá KEA
Kaffisúkkulaði

Aðferð:

Kexið er mulið smátt og smjörið brætt í potti við lágan hita. Smjörinu er síðan hellt yfir kexið og því þjappað vel ofan í formið.
Rjóminn er þeyttur og skyri og súkkulaðispæni af eins og einni lengju af kaffisúkkulaði blandað varlega við rjómann.
Skyrblöndunni er dreyft yfir kexbotninn og kakan skreytt með kaffisúkkilaði eða öðru sem ykkur finnst passa með. 
Kakan er höfð í ískáp í minnst 3 klst áður en hún er borin fram, en mér finnst best að hafa hana í kæli yfir nóttu.

Njótið vel, Gígja S

Ummæli