Rjómakenndur hakk og pastaréttur

Rjómakenndur hakk og pastaréttur með cheddarost og tómat

Æðislega góður og bragðmikill pastaréttur, mæli einstaklega mikið með honum en allir stóðu afvelta upp frá borðinu. 



Uppskriftin er fyrir 6 fullorðna

Innihald:

Olía
1 Laukur
1 kg hakk
5 hvítlauksrif
1 tsk oregano krydd
1-2 tsk ítalskt krydd 
2 tsk salt
1 tsk cayanne pipar
1.5 bolli tómatsósa (ég nota sykurlausa)
500 gr fusilini pasta
1 bolli rjómi
1 bolli rifinn cheddarostur
1 bolli nautasoð (nautakraftur leystur upp í bolla af soðnu vatni)

Aðferð:

Laukurinn er skorin og mýktur í olíu á pönnu í 4-5 mínútur, þá er hakkinu bætt út á pönnuna og eldað í gegn.
Pasta er sett í pott og eldað eftir leiðbeiningum á pakkanum
Fitunni er hellt af pönnunni og hvítlauk og kryddunum bætt út í, þegar kryddin hafa blandast vel við hakkið þá er tómatsósu og nautasoði bætt út í hakkið og látið malla.
Þegar pastað er tilbúið þá er pastanu ásamt rjóma og osti bætt út í hakkið og hrært þar til osturinn er alveg bræddur.




Æðislega gott með hvítlauksbrauði. Njótið vel 

Ummæli