Æðislegt Kryddbrauð



Ég geri uppskrift fyrir 2 kryddbrauð þar sem 1 klárast strax. Auðvitað getið þið minnkað uppskriftina.

Inninhald:

6 dl hafrar
6 dl hveiti
2 dl sykur
2 tsk engifer
4 tsk matarsóti
2 tsk kanill
2 tsk negull
6 dl mjólk
2 egg

Aðferð:
1. Öllum þurrefnunum er blandað saman í skál
2. Í aðra skál er eggjum og mjólk pískað saman með gaffli og hellt ut í þurrefnablönduna
3. Látið degið standa i 15 mínútur svo að hafrarnir mýkist upp
4. Bakið í ofni í 10 mínútur á 200 gráðum, lækkið svo hitann í 170 gráður og bakið í 30 mínútur í viðbót.

Æðislega gott brauð með miklu smjöri og osti

Njótið vel, Gígja S 

Ummæli