Dúnmjúk djöflaterta með englakremi



Mér finnst eitthvað svo jólalegt við þessa köku, þetta fallega hvíta flöffí krem og nafnið. Æðisleg á kaffiborðið í desember og auðvitað alla hina mánuðina líka. 


Innihald botnar:


1 bolli hveiti

1 bolli sykur

1/2 bolli bökunarkakó

1 tsk lyftiduft

1 tsk matarsóti

1/2 tsk salt

1 stórt egg

1/2 bolli Nýmjólk

50 gr brætt smjör

2 tsk vanilludropar

1/2 bolli volgt vatn eða kaffi (eða 50/50)


Aðfreð botnar:


Ofninn er hitaður 170 gráður blástur og bökunarpappír settur í botninn á kökuforminu

Í hrærivélaskál fer hveiti, sykur, kakó, matarsóti, lyftiduft og salt.

Þurrefnunum er blandað saman og síðan er rest bætt út í og hrært saman þar til allt hefur blandast vel, en degið er frekar þunnt.

Deigið er næst sett í smurt formið og bakað í um 40 mínútur eða þar til það er hægt að stinga í kökuna og það festist ekkert deig á gafflinum.

Þá er kakan tekin út og hún kæld á borði amk 10 mínútur áður en hún er tekin úr forminu.


Innihald englakrem:


1 bolli sykur

3 eggjahvítur

2 msk sýróp

1/3 bolli vatn

1/2 tsk vanilludropar


Aðferð englakrem:


Í pott fer sykur, vatn, sýróp og vanilludropar og hitað þar til suðan kemur upp, þá er potturinn tekin af hellunni og hrært þar til sykurinn hefur alveg leysts upp.

Á meðan eru eggjahvíturnar stífþeyttar í hrærivélinni

Þegar sykurvatnið er tilbúið þá er því hellt í mjórri bunu út í eggjahvíturnar og þeytt aðeins lengur.

Þegar kakan hefur kólnað þá er kreminu smurt á alla kanta kökunnar. Kremið er mjög flöffí, því meira krem því betra þannig ekki vera hrædd við að það lýti út fyrir að vera of mikið krem.





Njótið vel og gleðileg jól


Gígja S 

Ummæli