Mjúk súkkulaðikaka með karamellu og pekantoppi




Þessi er alveg dúndur góð, þá séstaklega þegar það er ný búið að hella heitri karamellusósunni yfir og hennar notið með vanilluís eða rjóma.


Innihald súkkulaðibotn:


1 bolli hveiti

1 bolli sykur

1/2 bolli bökunarkakó 

1 tsk lyftiduft

1 tsk matarsóti

salt á hvífsoddi

1  egg

1/2 bolli mjólk

50 gr brætt smjör

1 tsk vanilludropar

1/2 bolli volgt vatn



Innihald Pekanhnetu og kókoskröst:


150 gr pekanhnetur

3 msk af gróflega brotnum kókosflögum

1 msk sykur

1 msk brætt smjör

1 tsk gróft salt / eins og maldon salt


Innihald karamellusósa:


1 bolli sykur

1/3 bolli vatn

1 bolli rjómi



Aðfreð súkkulaðibotn:


1. Ofninn er hitaður 170 gráður blástur og bökunarpappír settur í botninn á kökuforminu eða það vel smurt.

2. Í skál fer hveiti, sykur, kakó, matarsóti, lyftiduft og salt.

3. Þurrefnunum er blandað saman og síðan er rest bætt út í og hrært saman þar til allt hefur blandast vel.

4. Deigið er næst sett í smurt formið og bakað í um 40 mínútur eða þar til það er hægt að stinga í kökuna og það festist ekkert deig á gafflinum.


Þá er kakan tekin út og hún kæld á borði amk 10 mínútur áður en hún er tekin úr forminu



Aðferð pekanhnetu og kókoskröst:


Gott er að setja pekanhneturnar og kókosflögurnar inn í ofn á meðan kakan er að kólna


1.Smjörið er brætt

2. pekanhnetunum og kókosflögunum er vellt upp úr brædda smjörinu, sykri og salti

3. þá næst er því dreyft vel á bökunarplötu og bakað i ofni við 180 gráður í 10-15 minutur eða þar til það er komin góður litur.


Aðferð karamellusósa:


1. Sykur og vatn fer saman í pott og hitað við háan hita

2. í annan pott fer rjóminn og hann hitaður á lágum hita

3. hrærið vel í sykurvatninu og þegar það er farið að taka vel lit þá er potturinn tekin af hellunni og rjómanum helt varlega út í á meðan þið hrærið á fullu.


Stingið göt á kökuna með gaffli, dreyfið pekanhnetukröstinu yfir og hellið í lokinn volgri karamellusósunni yfir.





Njótið vel, Gígja S

Ummæli